|
Kvondódeildin er yngsta deild félagsins, stofnuð 11. nóv. 1990, en þá hafði íþróttin mjög nýlega borist til landsins.
Deildin hefur nú dafnað mjög vel og þó sérstaklega nú eftir að hún fékk aðstöðu í nýja Í.R. húsinu við Skógarsel.
Deildin er langöflugust og fjölmennust þeirra félaga sem leggja stund á Taekwondo. Þeir félagar, sem stundað hafa æfingar lengst eru við það að ná svarta beltinu eða komnir með það, og er það deildinni mikill ávinningur að geta notað þá sem þjálfara undir stjórn og umsjón yfirþjálfara deildarinnar.